Setja verður Samherja stólinn fyrir dyrnar
Íslandsdeild Transparency International vill að spornað verði við framgang Samherja, undir framkvæmdastjórn Þorsteins Más Baldvinssonar, sem opinberast hefur almenningi enn frekar undanfarna daga. Íslandsdeild TI kallar eftir breiðfylkingu almennings, félagasamtaka, stéttarfélaga, samtaka uppljóstrara, fræðasamfélags, stjórnmálanna og allra þeirra sem vettlingi geta valdið gegn tilraunum fyrirtækisins og „skæruliða“ til að grafa undan samfélagssáttmálanum og gildum þeim er hann byggir á. Það er okkar allra að standa vörð um lýðræðið, samfélagið og tjáningarfrelsið, hvert á sínu sérsviði.
Ólíðandi er að fyrirtæki sem á alla sína starfsemi og auð að þakka heimild til nýtingar á sameiginlegri auðlind almennings nýti arðinn með yfirgangi gegn samfélaginu og stoðum þess. Starfsemi Samherja í Namibíu byggði að auki á velvild íslenskrar þróunarsamvinnu. Enn fremur hefur Samherji á engum tímapunkti sýnt vilja til umbóta heldur þvert á móti varið fé og vinnustundum í að grafa undan eftirlitsstofnunum, blaðamönnum og þar með samfélaginu öllu. Skýrsla Wikborg Rein hefur enn ekki verið birt opinberlega. Reglur um stjórnarhætti og regluvörslu sem fyrirtækið tilkynnti um mitt ár 2020 hefur ekki verið fylgt eftir. Þá hefur Samherji heldur aldrei gefið út skýra yfirlýsingu um að uppljóstrarar og rannsakendur málsins njóti verndar gegn ofsóknum fyrirtækisins, eins og nýgildandi lög kveða á um. Framganga Samherja sýnir helst að stjórnendur félagsins rói öllum árum gegn tilraunum almennings á Íslandi og víðar til að komast til botns í málinu.
Fyrirtæki og einstaklingar sem sanna vilja sakleysi sitt stunda ekki ofsóknir gagnvart þeim sem rannsaka og upplýsa um meintar misgjörðir. Fyrirtæki sem hafa ekkert að fela stunda ekki árásir á fólk sem berst fyrir bættu samfélagi og almannaheill. Fyrirtæki sem eru meðvituð um almannahag þurfa ekki „skæruliðadeild“ sem lætur sig dreyma um að „stinga, snúa og strá svo salti í sárið“.
Stjórnmálamenn og sérstaklega stjórnarliðar geta ekki lengur komið sér undan því að takast á við hið pólitíska og kerfislæga umhverfi sem umber svona framgöngu árum saman. Annað hvort eru þeir með almenningi í baráttunni gegn spillingu eða á móti með þögn, meðvirkni, aðgerðarleysi og seinagangi við að koma upp nútímalegum spillingarvörnum milli stjórnsýslu og viðskiptalífs. Stjórnmálin geta ekki lengur litið undan. Kvótahafar sem virða að vettugi alþjóðlegar skuldbindingar og siðareglur sem Ísland kvittar undir eiga ekki að geta treyst því að fá að halda í yfirburðastöðu sína. Það eru forréttindi fá að fara með nýtingarrétt á takmörkuðum gæðum hafsins.
Hafi hlítingarnefnd Samherja í formennsku Björgólfs Jóhannssonar hlutverk umfram það að vera neðanmálslína í fréttatilkynningu liggur í augum uppi að nefndin verði kölluð saman til að undirbúa opinbera birtingu á umfangi og eðli aðgerða fyrirtækisins undanfarin ár í baráttunni gegn uppljóstrunum og rannsóknum á starfsemi Samherja er varða þau mál sem fjallað hefur verið um. Augljóst er eftir uppljóstranir undanfarinna daga að Björgólfur er ekki fær um formennsku nefndarinnar eigi störf hennar á annað borð að vera trúverðug.
Fréttir af tilraunum Samherja til að hafa áhrif á forystu í samtökum launafólks er grafalvarlegt mál sem ekkert stéttarfélag í landinu getur látið hjá líða að fordæma. Íslandsdeild TI vill hvetja aðila eins og samtök blaðamanna og stéttarfélög, sem og félög sem tilheyra stærri heimssamtökum að kalla eftir samstöðu og aðstoð sinna hreyfinga og þrýsta á rannsókn og kröftugt viðbragð í þeim fjölda lögsaga sem framganga Samherja snertir. Íslandsdeild mun að sjálfsögðu gera slíkt hið sama.
Stöndum saman gegn spillingu.