Umboðsmaður Alþingis heldur erindi á aðalfundi Gagnsæis

Umboðsmaður Alþingis, Tryggvi Gunnarsson, heldur erindið „Gagnsæi og hæfisreglur í stjórnsýslunni“ í aðdraganda aðalfundar Gagnsæis, þriðjudaginn 19. apríl, n.k. kl. 16.00.  Erindið og aðalfundurinn mun fara fram í Odda stofu 101 í Háskóla Íslands.  Að loknu erindi munu venjuleg aðalfundarstörf fara fram.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Formaður Jenný Stefanía Jensdóttir flytur ársskýrslu um starfsemi samtakanna og leggur fram ársreikning félagsins.
  1. Stefnuskrá, starfsáætlun, fjárhagsáætlun og félagsgjöld næsta árs.
  1. Breytingar á samþykktum félagsins – stjórnin leggur ekki fram breytingar
  1. Kynning styrktaraðila og fjármögnun samtakanna, Guðrún Johnsen
  1. Kjör eins stjórnarmanns til eins árs, núverandi stjórn var á síðasta aðalfundi kjörin til 2ja ára en einn stjórnarmaður hefur óskað eftir að ganga úr stjórn.
  1. Kjör skoðunarmanns reikninga félagsins
  1. Kjör fulltrúa í nefndir og vinnuhópa. Jón Ólafsson skýrir frá fyrirhuguðum vinnuhópum
  1. Önnur mál