Ákærur og dómar vegna hrunmála
Núna þegar árið 2017 er senn á enda runnið, eru enn 3 stór hrunmál sem eiga eftir að koma til kasta Hæstaréttar og 1 mál sem tekið verður til aðalmeðferðar hjá Héraðsdómi 17.janúar 2018. Um er að ræða Chesterfield málið, sem fjallaði um umboðssvik og lánveitingu vegna kaupa á skuldabréfi tengdu skuldatryggingarálagi Kaupþings þar sem tjón Kaupþings var talið a.m.k. 520 milljóni evra. Hæstiréttur vísaði málinu aftur í hérað eftir að hafa ógilt sýknudóm á grundvelli ónógs rökstuðnings og rannsóknar. Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Magnús Guðmundsson eru ákærðir í málinu, en Hreiðar Már og Sigurður hafa þegar uppfyllt 6 ára refsiramma í öðrum málum . Stímmálið, þar sem ákært var fyrir markaðsmisnotkun og lán fyrir hlutabréfum í Glitni var einnig vísað aftur í hérað vegna vanhæfis dómara, en nýr dómur féll í héraði þann 21. desember s.l. Lárus Welding hlaut 5 ára dóm í héraði og hefur þá uppfyllt refsirammann en Jóhannes Baldursson hlaut 2ja ára dóm og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson 1,5 árs dóm.
Þá mun aðalmeðferð vegna markaðsmisnotkunarmáls Glitnis hefjast í héraði 17. janúar n.k. Þar koma aftur við sögu Lárus Welding og Jóhannes Baldursson, auk Jónasar Guðmundssonar, Valgarðs Más Valgarðssonar og Péturs Jónssonar starfsmanna Glitnis. Marple málið sem dæmt var í öðru sinni í byrjun júlí s.l. var áfrýjað til Hæstaréttar. Það fjallar um 8 milljarða fjárdrátt og umboðssvik Hreiðars Más Sigurðssonar, Magnúsar Guðmundssonar auk hlutdeildar Skúla Þorvaldssonar í meintum brotum þeirra.
Í töflunni hér ofar má sjá samantekt yfir niðurstöður og fjölda dómsmála í héraði og Hæstarétti. Fjöldi ákærða er 71 en sömu einstaklingar geta komið að fleiri málum og teljast því oftar. Í Héraði hefur verið kveðinn upp dómur yfir 62 einstaklingum, þar af hafa 30 verið sýknaðir og 32 eða 53% verið dæmdir sekir. Í Hæstarétti er sektarhlutfallið mun hærra, en þar hafa verið kveðnir upp dómar yfir 52 einstaklingum, þar af hafa 41 eða 79% verið dæmdir sekir og refsitími ákvarðaður alls tæplega 88 ár.
Dómar í markaðsmisnotkunarmálum hafa verið mjög þungir og því gæti fjöldi refsiára numið yfir 100 árum áður en yfir lýkur í dómarasögu hrunmála. Hér er linkur á samantekt og yfirlit yfir mál sem greinahöfundur skilgreinir sem hrunmál.
― ― ―
Höfundur: Jenný Stefanía Jensdóttir, situr í stjórn Gagnsæis